Bílar og búnaður

Heimsóknir á síðuna

Skoða innlit efnis : 104121
Forsíða
Námskeið 3 á Egilsstöðum
Skrifað af: Baldur Pálsson   
Sunnudagur, 04. mars 2012 14:37

Síðast liðna helgi fór fram á Egilsstöðum námskeið 3 á vegum Brunamálaskólans. 13 slökkviliðsmenn frá Brunavörnum á Austurlandsi sóttu námskeið. Fimm frá Egilsstöðum, fjórir frá Seyðisfirði, tveir frá Borgarfirði eystra og tveir frá Djúpavogi. Námskeiðið var frá föstudegi til sunnudags, alls 30 klukkustundir bæði bóklegt og verklegt. Kennarar á námskeiðinu voru Þórður Bogason og Árni Ómar Árnason frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, ásamt Bernhard Jóhannessyni sérfræðingi hjá Mannvirkjastofnun.

Nemendur lærðu meðal annars um björgunartækni úr bifreiðum, verðmætabjörgun, vatnsöflun og ýmislegt um hnúta og notkun stiga. Hér í myndasafni er hægt að sjá nokkrar myndir frá laugardeginum þar sem nemendur tókust á við nokkur erfið úrlausnarefni.

Áður höfðu sótt þetta sama námskeið til Hafnar í Hornafirði 6 slökkviliðsmenn frá Djúpavogi en Brunavarnir á Austurlandi í samstarfið við slökkvilið Hornafjaðrar stóðu saman að því.

 

 
Útköll 2010
Skrifað af: Baldur Pálsson   
Föstudagur, 23. september 2011 10:37

Útköll á árinu 2010 voru 17 hjá Brunavörnum á Austurlandi, þar af 13 eldútköll og 4 í bílslys. Ekkert útkall varð á slökkviliðið á Djúpavogi og ekki heldur á slökkviliðið á Borgarfirði. Mesta eldútkall á svæðinu varð 30 júní í Fellabakarí en kölluð voru til aðstoðar slökkviliðin á Seyðisfirði, Fjarðabyggð, Vopnafirði og einnig Björgunarsveitin Hérað.

Slökkviliðið á Egilsstöðum var kallað út 18 desember til aðstoðar vegna elds í spenni í Álverinu á Reyðarfirði. Þetta var án efa mesti eldur sem slökkvilið hafa staðið frammi fyrir á Austurlandi og mikil ógn sem af honum safaði og gat haft veruleg áhrif á þjóðarhag.

 
Eldvarnaátak á Seyðisfirði.
Skrifað af: Baldur Pálsson   
Miðvikudagur, 08. desember 2010 12:33

Slökkviliðsmenn á Seyðisfirði ganga í hús næstu kvöld og bjóðast til að taka við handslökkvitækjum og koma þeim á skoðunarstöð og skila þeim aftur að yfirferð lokinni.

Einnig munu þeir bjóða til sölu reykskynjara, eldvarnateppi og handslökkvitæki.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 12

Viðburðir

Þri 22 maí kl. 19:30 - 22:00
Djúpi æfing

Könnun

Er slökkvitæki á þínu heimili
 

Dagatal

Maí 2012
S M Þ M F F L
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2